| Um Matarvefinn.is |
| Matarvefurinn er árangur samstarfsverkefnis Hugbúnaðar hf., Matvælarannsókna |
| Keldnaholti, Manneldisráðs Íslands, Námsgagnastofnunar og Rannsóknastofu í |
| næringarfræði við Háskóla Íslands. Verkefnið var fjármagnað með styrk frá |
| Rannsóknarráði Íslands og kom styrkurinn úr markáætlun ráðsins um |
| upplýsingatækni. Þátttakendur í verkefninu stóðu undir hluta kostnaðarins. |
| Öll forritunarvinna fór fram hjá Hugbúnaði hf. en gögn um efnainnihald |
| matvæla koma úr Íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla (ÍSGEM). |
| Gagnagrunnurinn er uppfærður hjá Matvælarannsóknum Keldnaholti í samstarfi við |
| Manneldisráð Íslands. ÍSGEM grunnurinn er opinber gagnagrunnur fyrir Ísland á |
| sínu sviði og um starfsemina er fjallað í samstarfsnefnd sex aðila og stofnana. |